Einfaldar útskýringar á stjórnmálum og fleiru

Þetta kom til mín í tölvupósti og ég veit ekki eftir hvern þetta er. Set þetta hér til gamans því okkur er jú sagt að við megum ekki láta ástandið draga okkur niður.

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha!!! Já þetta hjápar manni að skilja hvernig þetta allt virkar.. og ekki veitir nú af þar sem það er stundum eins og stjórnmálamenn tali úglensku!!

Takk fyrir þetta!

Svava Björk Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Jakobsson

Höfundur

Ólafur Jakobsson
Ólafur Jakobsson
Áhugamaður um samfélagið okkar.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband